—Reykjavik Bókmenntaborg UNESCO City of Literature —
(English side:)
Around Skólavörðuholt hill, fifteen streets carry names from Norse Mythology. The neighbourhood is sometimes referred to as the Neighbourhood of the Gods as Thor, Freyja and many more gods from the pagan religion have their own streets here. At one time, city authorities tried to name the area Asgard, one of the nine worlds in Norse Mythology and home of the gods, but the name did not stick. The one eyed and wisdom seeking Odin was the first god to have his namesake here, not surprisingly as he is traditionally considered to be the highest of the gods residing in Asgard. Odinsgata got its name in 1906 and it set the tone for other street names in the area for the next 25 years or so.
The main source of knowledge about the pagan world view is to be found in the Edda of Snorri Sturluson and the Poetic Edda. The 13th century Codex Regius, which is the oldest preserved manuscript containing the Edda poems, is one of the most valuable Icelandic manuscripts. It is preserved by the Arni Magnusson Institute here in Reykjavik. Snorri's Edda collects material from the poems and other sources and paints a clear picture of the gods. One of them is Njord that this street, Njarðargata, is named after:
"The third As is the one called Njord. He lives in heaven in a place called Noatun. He rules
over the motion of wind and moderates sea and fire. It is to him one must pray for voyages and fishing."
The naming system in the neighbourhood does not seem to reflect certain myths, with a few exceptions. The fact that Baldursgata and Nonnugata intersect is hardly a coincidence, as Baldur and Nanna are husband and wife. In the same fashion, it is meaningful that Valastigur and Haoarstigur lay side by side next to Baldursgata. Hodur the blind and Vali are Baldur's brothers. Hodur is tricked by Loki to shoot an arrow made from mistletoe at Baldur, and is thus indirectly responsible for his death. In revenge, Vali slays Hodur.
It is interesting to note that some of the major gods do not make their way onto the city map. The goddess Frigg is one of them, as are Sif and Heimdallur. On the other hand, if you travel to Copenhagen, you will find Heimdalsgade, Friggagatan is in Gothenburgh and on the planet Venus there is a volcano carrying the name of Sif.
(Icelandic text:)
Í kringum Skólavörðuholtið eru 15 götur sem sækja nöfn í norræna goðafræði. Hverfið er stundum kallað „goðahverfið" og eru dæmi þess að verslanir á svæðinu hafi notað það nafn í auglýsingum sínum. Á tímabili gerðu borgaryfirvöld líka tilraun til að nefna hverfið Asgarð en sú nafngift varð ekki lífseig. Óðinsgata var fyrsta gatanlþessum hópi, enda er hinn eineygði
og fróðleiksfúsi Óðinn jafnan talinn æðstur guðanna í Asgarði. Gatan fékk nafn sitt árið 1906 og markaði stefnu fyrir fleiri nafngiftir í hverfinu næsta aldarfjórðunginn.
Helstu heimildir okkar um heiðna norræna heimsmynd eru Edda Snorra Sturlusonar og Eddukvæði. Konungsbók Eddukvæða er elsta varðveitta handritið sem færir okkur kvæðin í samfelldri mynd. Þetta einstaka handrit er varðveitt hér í Reykjavík. Í Snorra-Eddu er safnað saman fróðleik úr kvæðunum og fieiri heimildum og er þar að finna gagnorðar lýsingar á helstu guðum og gyðjum. Nirði, sem Njarðargata er nefnd eftir, er bar lýst svo:
„Hann býr á himni þar sem heitir Nóatún. Hann ræður fyrir göngu vinds og stillir sjá og eld. Á honn skal heito til sæfara og veiða."
Ekki lítur út fyrir að götunum hafi verið ætlað að vísa til tiltekinna goðsagna en það má þó telja merkingarbært að Baldursgata og Nönnugata, sem vísar til Nönnu eiginkonu Baldurs, skuli mætast. Með svipuðum hætti er vart tilviljun að Válastígur og Haðarstígur liggi samhliða Baldursgötu. Höður hinn blindi og Váli eru bræður Baldurs. Sá fyrrnefndi ber óbeint ábyrgð á dauða hins hvíta áss en sá síðarnefndi hefnir Baldurs með því að ráða Höd af dögum. Athyglisvert er að nokkur stærri goðmögn komast ekki á borgarkortið, þeirra á meðal Frigg, Sif og Heimdallur. Hins vegar er Heimdalsgade að finna í Kaupmannahöfn, Friggagatan er í Gautaborg
og á plánetunni Venus er eldfjall sem ber nafn Sifjar.
Comments 0 comments